mið. 24. apr. 2024 18:02
Guillermo Rodriguez tók sig vel út.
Stal athyglinni frá Kim Kardashian

Guillermo Rodriguez, sjónvarpsstjarna og dyggur aðstoðarmaður Jimmy Kimmel, var sannkallaður senuþjófur í spjallþætti Kimmel, Jimmy Kimmel Live, á dögunum.

Spjallþáttastjórnandinn vinsæli, var að ræða við Kim Kardashian, raunveruleikastjörnu og athafnakonu, þegar Rodriguez mætti á svið klæddur SKIMS aðhaldsfatnaði. SKIMS er í eigu Kardashian, hún stofnaði nærfata­merkið ásamt Emmu og Jens Grede árið 2019.

Rodriguez, sem hefur unnið fyrir Jimmy Kimmel síðastliðin 20 ár, tók sig vel út í svörtum samfesting, Kardashian, Kimmel og áhorfendum til mikillar ánægju. 

View this post on Instagram

A post shared by Jimmy Kimmel Live (@jimmykimmellive)

 

 

til baka