Salat vikunnar á matarvefnum að þessu sinni kemur úr leyndardómsfulla eldhúsinu í Húsó, Hússtjórnarskólanum góða. Hér er á ferðinni dýrðlegt nautakjötssalat með límónu- og engifersósu sem ber heitið Húsó-nautakjötssalat. Límónu- og engifersósan passar vel með nautakjötinu og gefur þetta ferska og góða bragð sem minnir á að sumarið er að koma.
https://www.mbl.is/matur/frettir/2023/11/11/huso_nautakjotssalat_med_limonu_og_engifersosu/