fim. 18. apr. 2024 22:25
„Þetta er hressileg törn og dagarnir eru oft langir,“ segir Þórður.
Langir dagar í dekkjum

„Þetta er hressileg törn og dagarnir eru oft langir,“ segir Þórður Þrastarson á dekkjaverkstæði Kletts við Hátún í Reykjavík. Frá og með 15. apríl eru negld vetrardekk undir bílum bönnuð, en lögregla horfir þó til aðstæðna og ökumenn hafa svigrúm til dekkjaskipta eitthvað fram á vorið.

„Nú þegar snjóföl er yfir í bænum hægði aðeins á hjá okkur á verkstæðinu, en svo fer þetta fljótlega aftur á fullt,“ tiltekur Þröstur.

Hann segir um fjórðung bíla í umferðinni vera á heilsársdekkjum, en að sínu mati sé þó best að skipt sé á dekkjum milli sumars og veturs. Margir séu með neglda hjólbarða, en umhverfissjónarmið ráði nokkru um að slík séu á undanhaldi.

til baka