mið. 17. apr. 2024 20:47
„Hann lætur hana alltaf borga fyrir allt“

„Strákar, þegar þið voruð að byrja að deita konurnar ykkar og buðu þeim á stefnumót, buðuð þið og borguðuð eða skiptuð þið reikningnum á milli?“ spyr Kristín Sif þá Þór Bæring og Bolla Má í morgunþættinum Ísland vaknar.

Kristín sagðist velta þessu fyrir sér vegna þess að einhleypa vinkona hennar er nýbyrjuð að hitta mann. „Hún lendir oft í rosalega skrýtnu. En hún var sem sagt að byrja að hitta mann sem hún er að vinna með. Hún þekkir hann aðeins og er búin að hafa augastað á honum í smá tíma. Síðan verður það að stefnumóti og hún er mjög skotin í honum, en hann lætur hana alltaf borga fyrir allt,“ útskýrir Kristín. 

Gleymdi veskinu

„Hann er með afsakanir eins og hann gleymdi veskinu og svoleiðis. Svo um daginn fór það svo að þau fóru heim saman. Hann skildi bílinn sinn eftir fyrir utan fyrirtækið og þau tóku svo leigubíl heim. En hann mátti ekki leggja fyrir utan fyrirtækið og það endaði með því að bíllinn var dreginn. Til að sækja bílinn þá keyrir hún hann en hann lætur hana borga bílinn út. Henni finnst þetta pínu skrýtið.“

„Þetta er fáránlega skrýtið,“ svarar Bolli. „Hann er þá bara í einhverjum vandræðum.“

Hlustaðu á brotið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

 



til baka