mið. 17. apr. 2024 17:07
Sigríður Arnardóttir fjölmiðlakona og Halla Hrund féllust í faðma þegar þær hittust í fyrsta skipti.
Sirrý og Halla Hrund föðmuðust þegar þær hittust í fyrsta skipti

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi hélt opinn fund í húsi Máls og menningar á sunnudaginn. Stefán Hilmarsson söngvari söng fyrir gestina og það gerði líka eldri dóttir Höllu Hrundar, Hildur Kristín sem er á tólfta ári. Fjölmiðlakonan Sirrý Arnarsdóttir var fundarstjóri á fundinum en þær Halla Hrund féllust í faðma þegar þær hittust í fyrsta skipti á fundinum. 

Fundurinn var mjög vel sóttur en Halla Hrund fyllti húsið af fólki. Daginn eftir var skoðanakönnun birt í Morgunblaðinu og þar kom fram að hún væri í 4. sæti með 10,6% fylgi.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/15/baldur_katrin_og_jon_taka_forystu/

 

 

 

til baka