þri. 16. apr. 2024 17:00
Áhrifavaldar vígðu heilsulind á hóteli í Vesturbænum

Splunkuný heilsulind var formlega opnuð um helgina á Granda by Center Hotels. Áhrifavaldar vígðu heilsulindina í sundbolum frá íslenska baðfatamerkinu Swimslow og upplifðu töfrandi hvíldarstund. 

Fyrirtækin Rvk Ritual og Swimslow skipulögðu opnunarviðburðinn.

„Spa-ið er einstaklega fallegt með tveimur stórum pottum, stórri þurrgufu, kaldri gusu og lounge svæði þar sem hægt er að slaka vel á og njóta. Það sem kórónar spaið er svo hringlaga op í loftinu á pottasvæðinu sem skapar skemmtilega úti/inni stemningu. Upplifunin var fullkomnuð með kvöldverði á Héðni Kitchen & Bar og gistingu á Granda by Center Hotels,“ segir Erna Bergmann eigandi Swimslow. 

til baka