þri. 16. apr. 2024 12:30
Sagðist líkjast Megan Fox og varð lögð í einelti

EVA RUZA FLYT­UR PISTLA UM STJÖRN­URN­AR Á HVERJ­UM DEGI Á SINN EIN­STAKA HÁTT Á K100.

Það ætlaði allt um koll að keyra á vefnum þegar Chelsea Blackwell, þátttakandi í raunveruleikaþáttunum Love Is Blind sagði í þáttunum að hún líktist leikkonunni Megan Fox.

View this post on Instagram

A post shared by Chelsea Blackwell (@chelseadblackwell)

 

Ég er ekki að ýkja en Chelsea fékk yfir sig holskeflu af ljótum skilaboðum því fólk var ekki sammála henni. Margir telja Megan vera einu fallegustu konu heims.

View this post on Instagram

A post shared by Kaitlyn Bristowe (@offthevinepodcast)

 

Chelsea þurfti að stíga fram og útskýra að þetta væri kona sem fólk væri að bera hana saman við og hálf afsakaði orð sín. 

Margar fréttir voru skrifaðar, mörg TikTok búin til og í raun asnalega mikil læti í kringum þessa saklausu setningu hennar. Sem var víst einnig tekin úr samhengi.

View this post on Instagram

A post shared by British GLAMOUR (@glamouruk)

 

Megan hefur nú tveimur mánuðum síðar látið heyra í sér í sambandi við þetta mál. Megan segist sjaldan hafa fengið jafn mörg skilaboð í lífinu eins og eftir þessi ummæli Chelsea. Megan hefur hins vegar ekki horft á þættina sjálf en hefur séð mynd af Chelsea.

Hún segir enginn eigi skilið þetta einelti og áreiti og vonar að Chelsea tapi ekki blikinu í augum sínum.

@celebritytiktokcl Megan Fox breaks silence on Love is Blind star Chelsea Blackwell #meganfox #coachella #loveisblind #mgk #foryoupage #fyp @Cindy Lee p.2 @celebclips ♬ original sound - celebclips

 

 

til baka