mán. 15. apr. 2024 12:35
„Er ógeðslega léleg að elda“

Söng- og leikkonan Elín Sif Hall er ánægð með að hafa fólk í kringum sig sem eldar fyrir hana og er hún dugleg að koma sér annað í matarboð. Þau Regína Ósk, Ásgeir Páll og Jón Axel í Skemmtilegu leiðinni heim eiga það til að hringja í þekkta einstaklinga og spyrja út í kvöldmatinn. Í þetta skiptið var Elín á línunni. 

„Það er kaldhæðnislegt að spyrja mig að þessu því ég er ógeðslega léleg að elda. Ef ég mætti velja sjálf myndi ég alltaf fá mér Cheerios,“ segir Elín. „Ég er alls ekki matvönd, er bara löt að búa til mat. Ef ég væri ekki með fólk í mínu lífi sem myndi elda fyrir mig myndi ég bara veslast upp og deyja.“

Borðar hjá fjölskyldu

Hún segist vera góð í að koma sér í mat hjá foreldrum sínum, tengdaforeldrum og ömmu sinni. „Maður þarf að skipta þessu niður á daga. Svo finnst öllum svo gaman að fá mann í mat og þetta er frábært fyrir ungt fólk.“

Elín svarar því að Serrano sé hin fullkomna máltíð þegar hún er spurð að því hver uppáhalds maturinn hennar sé. 

Hlustaðu á brotið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

 

til baka