mið. 17. apr. 2024 20:00
Hjónin hafa verið gift frá árinu 2015.
Nafnavandamál hjá fimmta barninu

Peter Andre og eiginkona hans Emily eignuðust á dögunum þriðja barn sitt saman sem reyndist vera stúlka.

Hjónin eru eðlilega í skýjunum með viðbótina en Andre hefur þó viðurkennt að nafnagjöfin hefur reynst þeim erfið.

„Enn ekkert nafn komið. Við eigum í stökustu vandræðum. Nöfnin sem við vorum með í huga passa hreinlega ekki við hana,“ segir Peter Andre á samfélagsmiðlum.

Þetta er fimmta barn Andre en hann átti fyrir tvö börn með glamúrfyrirsætunni Katie Price. Oft reynir á samband hans við barnsmóður sína og deila þau mikið um áherslur í uppeldinu. Price hefur sakað konu Andre um að eitra samband sitt við börnin og Andre hefur miklar áhyggjur af líferni Price og þau neikvæðu áhrif sem lífsstíll hennar getur haft á börnin.

https://www.mbl.is/fjolskyldan/frettir/2023/10/12/fimmtugur_og_a_von_a_fimmta_barninu/

https://www.mbl.is/fjolskyldan/frettir/2022/01/13/i_stridi_vid_stjupmodur_barna_sinna/

 

 



View this post on Instagram

A post shared by Peter Andre (@peterandre)

 

 

 

til baka