Minnst fimm létu lífið og tuttugu slösuðust þegar rúta á vegum fyrirtækisins Flixbus fór á hlið nærri Leipzig í Þýskalandi fyrr í dag.
Rútan var á leiðinni frá Berlín í Þýskalandi til Zürich í Sviss þegar hún fór á hliðina.
Bílstjórarnir lifðu slysið
53 farþegar og tveir bilstjórar voru í rútunni þegar slysið varð. Ekki er vitað með vissu hvað olli slysinu. Báðir bílstjórarnir komust lífs af.
Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að verið sé að vinna í því að fá skýrari mynd af tildrögum slyssins.
Af myndum að dæma virðist rútan hafa keyrt af veginum og á nærliggjandi tré þar sem hún fór á hlið.