þri. 17. maí 2022 10:13
Sjálfstæðisflokkurinn fékk undir helming atkvæða en sjö af ellefu kjörna fulltrúa í bæjarstjórn.
Endurtalið í Garðabæ á morgun

Endurtalning á öllum atkvæðum í sveitarstjórnarkosningunum í Garðabæ hefst klukkan 16 á morgun. 

Þetta staðfestir Soffía Eydís Björgvinsdóttir, formaður kjörstjórnar í Garðabæ, í samtali við mbl.is. 

Beiðni barst frá Garðabæjarlistanum þess efnis að endurtalið yrði, vegna þess hve litlu munar á að listinn fengi þrjá menn kjörna í bæjarstjórn, í stað tveggja. Annar maður Garðabæjarlistans yrði á kostnað sjöunda manns Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn hlaut 49,1% atkvæða en sjö af ellefu kjörnum fulltrúum í Garðabæ. 

Soffía segir að endurtalning eigi að taka töluvert styttri tíma en fyrsta talningin, þar sem búið er að flokka og telja atkvæðin í bunka. Það létti á og talning og samlagning ætti aðeins að taka um þrjá til fjóra tíma. 

Niðurstaða endurtalningarinnar ætti því að liggja fyrir um og eftir kvöldmatarleytið, gangi allt samkvæmt áætlun.

til baka