Síðdegis í dag á flóðinu var hafist handa við að ná trefjaplastbátnum Manna ÞH-88 af strandstað. Báturinn keyrði upp í fjöru á Þórshöfn rétt við Hafnarlækinn um hádegisbil í dag.
Farið var á bát björgunarsveitarinnar Hafliða og taug sett í bátinn yfir að bryggju, þar sem hjólaskófla dró hann rólega af stað og flaut hann átakalaust að bryggjunni þar sem hann var hífður upp.
Báturinn er nokkuð laskaður en eftir er að ganga úr skugga um hve miklar skemmdir urðu við þetta óhapp.
https://www.mbl.is/200milur/frettir/2020/07/01/manna_rak_upp_i_fjoru/