mán. 14. okt. 2019 11:48
Sulli var áđur í hljómsveitinni f(x).
Fannst látin á heimili sínu

Ţekkt K-poppstjarna, sem hefur lengi veriđ fórnarlamb eineltis á netinu, fannst látin á heimili sínu í dag, ađ sögn lögreglunnar í Suđur-Kóreu.

K-popp er tónlistarstefna sem á rćtur sínar ađ rekja til Suđur-Kóreu og varđ fyrst heimsţekkt međ strákabandinu H.O.T. áriđ 1996. 

Umbođsmađur Sulli, sem áđur var í stelpnasveitinni vinsćlu f(x), fann hana látna á heimili hennar í úthverfi Seúl í morgun. Í tilkynningu frá lögreglu kom fram ađ Sulli, sem var ađeins 25 ára gömul, hafi glímt viđ ţunglyndi. Banamein hennar liggur ekki fyrir en er í rannsókn.

Sulli, sem hét réttu nafni Choi Jin-ri, var ţekkt fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna og kostađi sú barátta hana hrottalegt einelti og áreitni á netinu. Hún kom fyrst fram áriđ 2009 međ f(x) og varđ hljómsveitin fljótt eitt ţekktasta og vinsćlasta kvennahljómsveit heims.

Hún ákvađ ađ leggja framann á hilluna áriđ 2014 vegna eineltisins og hćtti í hljómsveitinni ári síđar. Sulli var mjög virk á samfélagsmiđlum og stutt síđan hún stýrđi ţáttaröđ í sjónvarpi ţar sem hún rćddi viđ ţekkt fólk um reynslu ţess ađ einelti á netinu.

 

til baka