mán. 25. júní 2018 06:28
Björgunarsveitarmenn festa þakplötur  - mynd úr safni.
Þakplötur fuku á höfuðborgarsvæðinu

Björgunarsveitarfólk í Mosfellsbæ var kallað út um fjögur í nótt vegna þess að þakplötur voru farnar að fjúka af húsum í sveitarfélaginu.

Um sex í morgun var björgunarsveitarfólk í Reykjavík einnig kallað út en þakplötur voru farnar að fjúka af húsi við Rauðagerði og eins voru þakplötur farnar að losna á húsum í Mjóddinni. 

til baka