Bandaríska bókunarsíðan TripAdvisor hefur keypt allt hlutaféð í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Bókun.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá TripAdvisor sem er stærsta ferðasíða heims. Hjalti Baldursson og Ólafur Gauti Guðmundsson stofnuðu Bókun árið 2012 utan um framleislu á hugbúnaði fyrir ferðaþjónustuna.
Fyrirtækið hefur vaxið ört og hefur víðtækan kúnnahóp, eða allt frá smærra ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi upp í alþjóðlegt Fortune 500 fyrirtæki. Meirihluti fyrirtækja í íslenskri ferðaþjónustu notar Bókun sem sitt sölu-, birgða- og samningakerfi.
Höfuðstöðvar Bókunar verða áfram staðsettar á Íslandi og eru áform um að stækka starfsemina. Kaupverðið var ekki gefið upp í tilkynningunni um yfirtökuna.