Þróttur Neskaupstað hefur farið vel af stað í Mizuno-deild kvenna í blaki, en liðið hafði betur gegn HK í annað skipti á tveimur dögum þegar liðin mættust í Neskaupstað í gær. Lokatölur í leiknum urðu 3:0, Þrótti í vil, en heimakonur höfðu betur, 25:20, í fyrstu hrinunni og önnur og þriðja hrina fóru báðar 24:19 fyrir Þrótti.
Þróttur hefur borið sigur úr býtum í fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni á yfirstandandi leiktíð. Hjördís Eiríksdóttir, leikmaður HK, var stigahæsti leikmaður vallarins, en hún skoraði 17 stig. Ana Maria Vidal Bouza var hins vegar atkvæðamest hjá Þrótti með 11 stig.
Í Mizuno-deild karla tapaði Þróttur Neskaupstað hins vegar 3:0 fyrir Stjörnunni á heimavelli, í annað sinn á tveimur dögum. Hrinurnar enduðu 25:17, 25:21 og 25:18 fyrir gestina frá Garðabæ.
Benedikt Baldur Tryggvason átti afar góðan leik fyrir Stjörnuna, en hann skoraði 23 stig. Miguel Mateo Castrillo var aftur á móti atkvæðamestur fyrir heimamenn með 16 stig.