Meirihluti andvígur upptöku evru

Meirihluti þeirra, sem tóku þátt í nýrri könnun Fréttablaðsins, er andvígur því að evra verði tekin upp hér á landi. 55,9% þeirra sem tóku afstöðu var andvígur en 44,1% hlynntur. Þá voru 51,1% andvíg því að Ísland gengi í Evrópusambandið en 48,9% sögðust vera því hlynnt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert