Pavlovudraumur með breyttu sniði og berjum

Miini pavlovur með vanillufyllingu og ferskum berjum.
Miini pavlovur með vanillufyllingu og ferskum berjum. mbl.is/Döðlur og smjör

Pavlovur eru með því besta sem hægt er að gæða sér á - og þessar hér eru með vanillufyllingu sem gefur einstakt bragð með fersku berjunum. Uppskrftin er frá Guðrúnu Ýr, okkar heiðurskonu sem heldur úti síðunni Döðlur og smjör

Pavlovudraumur með breyttu sniði og berjum

  • 125 g eggjahvítur 
  • 170 g sykur
  • 2½ tsk. maizena mjöl
  • 1 tsk. edik 

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 100°c. Aðskiljið eggin, vigtið eggjahvíturnar og setjið í hrærivélina ásamt þeytara. Setjið vélina af stað og á meðan vigtið sykurinn og bætið honum saman við eggjahvíturnar í nokkrum skömmtum. Stífþeytið marengsinn, þegar hann er orðinn stífþeyttur bætið maizena mjöli og ediki saman við og hrærið léttí 20-30 sek.
  2. Gott er að setja marengsinn í sprautupoka með hringlaga stút og sprauta á bökunarpappírsklædda plötu. Áætlið að hver pavlova sé um 7-8 cm í þvermál og 5-6 cm á hæð.
  3. Þegar búið að sprauta þá á plötuna er gott að taka skeið gera smá brunn í miðjunni og slétta brúnirnar. Gaman er að leika sér með kantana hvernig áferð maður vill.
  4. Bakið í 75 mín, gott er að slökkva á ofninum og opna hurðina aðeins og leyfa þeim að kólna þannig.

Vanillu fylling

  • 250 ml rjómi
  • 250 ml nýmjólk
  • 1 pk vanillubúðingur frá Royal

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman í skál og hrærið vel, helst með rafmagnsþeytara. Setjið fyllinguna í sprautupoka með hringstút.

Samsetning

  • Jarðaberjasulta
  • Jarðaber 
  • bláber
  • rjómasúkkulaði

Aðferð:

  1. Byrjið á því að taka matskeið og brjóta aðeins ofan í miðjunni á pavlovunni til að búa til aðeins meira rými fyrir fyllingu. Setjið þá eina matskeið af jarðaberjasultu í miðjuna á hverri pavlovu. Takið þá vanillufyllinguna og sprautið ofan í og vel ofan líka endurtakið við allar.
  2. Þá er bara að skera niður jarðaber og bláber og skreyta, bræða smá rjómasúkkulaði og drissla yfir.
  3. Ef þær eru ekki bornar fram strax er best að geyma þær í kæli.
mbl.is/Döðlur og smjör
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert