Ostabakkinn sem fullkomnar Júróvisionpartýið

Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Hér erum við með ostabakka sem er með þeim lekkerari sem við höfum séð. Nú erum við auðvitað að leggja á ráðin fyrir Júrópartýið og þar smellpassar góður ostabakki alltaf. Ekki spillir fyrir að bjóða upp á bakaðan ost í leiðinni eins og Berglind Hreiðars á Gotteri.is gerir hér.

Júróvision ostabakkinn 2022

Bakaður ostur með jarðarberjum og myntu

  • 1 x Brie ostur
  • 200 g jarðarber (skorin í teninga)
  • 1 msk. púðursykur
  • 1 msk. balsamik glaze
  • 2 msk. hunang
  • 1 lúka saxaðar kasjúhnetur
  • Nokkur myntulauf (söxuð)

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C og setjið ostinn í eldfast mót.
  2. Bakið hann í um 10 mínútur og útbúið jarðarberjatoppinn á meðan.
  3. Hitið saman púðursykur, balsamik glaze og hunang þar til sykurinn er bráðinn.
  4. Takið af hellunni og hrærið jarðarberjunum varlega saman við.
  5. Hellið yfir ostinn þegar hann kemur úr ofninum og toppið með söxuðum kasjúhnetum og vel af myntu!

Annað á ostabakka

  • Salamirós (ég notaði ítalska salami með kryddkanti, um 10 sneiðar)
  • Grissini stangir vafðar í hráskinku
  • Chili sulta
  • Grettir ostur
  • Möndlur
  • Döðlur
  • Súkkulaðihjúpaðar hnetur og ávextir
  • Jarðarber
  • Ostateningar (Gouda sterkur)
  • Ritz kex/annað kex
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert