Ískaffið sem sagt er það allra besta

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Ef það er einhvern tímann réttur tími fyrir ískaffi þá er það núna. Hér er vanillublanda notuð með og útkoman er hreint frábær! Það er meistari Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari uppskrift.

Ískaffið sem sagt er það allra besta

  • Klakar í glas
  • 2/3 sterkt kaffi
  • 1/3 Vanillublanda (magn eftir stærð glass)

Aðferð:

  1. Hræra saman

Til þess að fá enn betri útkomu fyrir ískaffið þá er gott að kaffið hafi náð stofuhita en fyrir óþolinmóða eins og mig þá virkaði líka mjög vel að skella þessu öllu beint saman. Klakarnir bráðna auðvitað aðeins hraðar og kaffið þynnist þar af leiðandi en mikið sem þetta var svalandi, gott og súpereinfalt!

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert