Grillað lamba-shawarma með vorlaukssósu og agúrkusalati

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Hér gefur að líta uppskrift sem sómir sér vel í hvaða matarboði og veislu sem er enda erum við að tala um hreinræktaða keppnisuppskrift! Íslenskt lambakjöt er hér í aðalhlutverki og fyllir það hlutverk einstaklega vel.

Vorlaukssósa með jalapenó-pipar

  • 1 búnt vorlaukur
  • 1 jalapeno-pipar, skorinn í tvennt langsum
  • hnefafylli basilíka
  • 40 ml sítrónusafi
  • ½ – 1 tsk. sjávarsalt
  • 125 ml ólífuolía
  • 3 msk. jógúrt, hrein

Agúrkusalat og sýrður rauðlaukur

  • 1 agúrka, skorin í þunnar lengjur
  • 2 msk. dill
  • 1-2 msk. ólífuolía
  • u.þ.b. ½ tsk. sjávarsalt
  • u.þ.b. ⅛ tsk. svartur pipar, nýmalaður
  • 1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
  • ½ sítróna, safi nýkreistur
  • 1 tsk. sumac

Lamba-shawarma

  • 1 heill hvítlaukur, toppur skorinn af
  • 2 msk. ólífuolía
  • 2 sítrónur, safi og börkur rifinn fínt
  • 1 tsk. paprika
  • 1 tsk. kummin
  • 1 tsk. kóríander, malaður
  • ½ tsk. kanill
  • 2 tsk. sjávarsalt
  • u.þ.b. 1 tsk. svartur pipar, nýmalaður
  • 1.5 kg lambalæri, úrbeinað
  • 2-3 límónur, skornar til helminga
  • 8 -10 lítil flatbrauð
  • 250 g grísk jógúrt
  • ½ – 1 msk. sriracha-sósa, eða önnur ósæt chili-sósa

Leiðbeiningar

Vorlaukssósa með jalapenó-pipar

  1. Grillið vorlauk og jalapenó á háum hita þar til hráefnið hefur fengið á sig góðan lit, u.þ.b. 5-7 mín. Setjið yfir á bretti og skerið smátt, látið í skál.
  2. Hrærið saman við basilíku, sítrónusafa, salti og ólífuolíu. Hrærið jógúrt saman við og bragðbætið sósuna með salti.

Agúrkusalat og sýrður rauðlaukur

  1. Setjið skorna agúrku í skál og blandið saman við dilli, ólífuolíu, ¼ tsk. salti og ⅛ tsk. pipar, setjið til hliðar.
  2. Setjið skorinn rauðlauk í litla skál og blandið saman við sítrónusafa, sumac-kryddi og ¼ tsk. af salti, hér er gott að nota fingurna til að nudda kryddinu saman við laukinn. Látið standa í a.m.k. 5 mín. áður en borið er fram.

Lamba-shawarma

  1. Hitið ofn í 200°C. Dreypið ólífuolíu yfir hvítlaukinn og pakkið honum inn í álpappír. Bakið hvítlaukinn í 1 klst. eða þar til hann er mjög mjúkur. Látið kólna örlítið og kreistið því næst hvítlaukinn úr hýðinu yfir í skál.
  2. Stappið hann með gaffli og hrærið saman við sítrónubörk, sítrónusafa, papriku, kummin, kóríander, kanil, 2 msk. af ólífuolíu, 1 tsk. af salti og ½ tsk. af pipar.
  3. Setjið kjötið yfir í djúpt fat og hellið kryddblöndunni yfir, nuddið vel yfir allt kjötið. Leggið filmu yfir og kælið yfir nótt. Takið kjötið úr kæli og látið ná stofuhita fyrir eldun.
  4. Hitið grill og hafið á miðlungsháum hita. Grillið kjötið í u.þ.b. 15 mín. á hvorri hlið eða þar til kjarnhitinn er 51°C – 54°C. Setjið kjötið yfir á bretti, leggið álpappír yfir og látið hvíla í a.m.k. 10 mín. áður en það er skorið.
  5. Setjið límónur á grillið og látið sárið snúa niður, grillið í nokkrar mín. Penslið flatbrauð með örlítilli olíu og grillið í nokkrar sek. á hvorri hlið. Setjið jógúrt í skál og hrærið saman við chili-sósu. Skerið kjötið í þunnar sneiðar og berið fram með flatbrauði, agúrkusalati, sýrðum rauðlauk, grískri jógúrt og grilluðum límónum til að kreista yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert