Hér erum við með tvær geggjaðar hummus uppskriftir frá Maríu Gomez á Paz.is sem toppa flest! Við erum annarsvegar að tala um heitan sveppahummus og spænskan paprikuhummus en ef einhver er með meirapróf í spænskri matargerð þá er þau að sjálfsögðu María.
Heitur hvítlauks sveppa hummus með timian
Sveppirnir:
- 250 gr sveppir
- 20 gr smjör til steikingar
- 2 tsk ólífuolía til steikingar
- 3-4 hvítlauksrif marin
- salt og pipar
- 1 tsk þurrkað timian
Hummusinn
- 1 dós eða krukka af soðnum kjúklingabaunum eða 230-240 gr af tilbúnum baunum
- 1 tsk sítrónusafi nýkreystur
- 45 gr tahini
- 1/2 tsk fínt borðsalt
- 1-2 hvítlauksrif
- svartur pipar
- kalt vatn
- ólífuolía til að setja ofan á hummusinn
- Ferkst timian til að toppa með
Grilluð papriku hummus
- 1 stk meðalstór rauð ramiro paprika
- 1 msk hlynsíróp
- 1 dós eða krukka af soðnum kjúklingabaunum eða 230-240 gr af tilbúnum baunum
- 1 tsk sítrónusafi nýkreystur
- 45 gr tahini
- 1/2 tsk fínt borðsalt
- 1-2 hvítlauksrif
- svartur pipar
- kalt vatn
Heitur hvítlaukssveppa hummus með timian
- Setjið smjör og olíu á pönnu og skerið sveppina í þunnar sneiðar
- Steikjið svo sveppina á pönnunni og saltið og piprið ögn og kryddið með þurrkaða timianu
- Þegar sveppirnir eru orðnir dökkir og steiktir merjið þá hvítlauksrifin og setjið á pönnuna í blálokin og hrærið vel við sveppina, bara örlitla stund áður en slökkt er undir, en hvítlaukurinn á bara rétt að soðna ekki verða brúnn
- Slökkvið svo á pönnunni og leyfið því að standa saman meðan hummusin er gerður
- Setjið öll innihaldsefnin í hummusinum saman í blandara eða matvinnsluvél nema vatnið
- Maukið saman þar til verður grófur og bætið þá 1/3 af steiktu sveppunum út í og maukið þar til er orðið að silkimjúku hummusi
- Gott er að nota pulse takkan reglulega og skafa niður með hliðunum
- Notið vatn til að þynna hummusinn í þá þykkt sem þið viljið hafa hann
- Hitið hann svo örlítið upp í potti eða örbylgju svo hann verði aðeins meira en volgur
- Toppið svo með restinni af heitum sveppunum af pönnuni, ólífuolíu og fersku timian
Grilluð papriku hummus
- Byrjið á að stilla ofninn á grill
- Setjið svo paprikuna í efstu hillu á grind í ofninum beint undir grillið
- Fylgist vel með en húðin á að fá á sig svarta brunabletti. Þegar það er komið á einni hlið snúið henni þá og látið koma svarta brunabletti á allar hliðarnar á paprikunni. Þetta gerist fljótt svo verið dugleg að fylgjast með
- Setjið svo paprikuna á disk og hvolfið skál yfir meðan hummusin er gerður
- Setjið öll innihaldsefnin í hummusinum saman í blandara eða matvinnsluvél nema vatnið
- Maukið saman þar til verður grófur
- Takið þá paprikuna og flysjið af henni hýðið en það fer auðveldlega af með puttunum og fræhreinsið hana
- Bætið henni út í blandarann og maukið þar til er orðið að silkimjúku hummusi
- Gott er að nota pulse takkan reglulega og skafa niður með hliðunum
- Notið vatn til að þynna hummusinn í þá þykkt sem þið viljið hafa hann