Tiktok-pastað sem allir krakkar vilja prófa

Ljósmynd/Gott í matinn

Ef það er eitthvað sem foreldrum hefur lærst þá er það áhrifamáttur tiktok og hér erum við með uppskrift sem hefur hreinlega verið kölluð tiktok-pastað.

Uppskriftin er frekar einföld en hér leika ostur og tómatar aðalhlutverkin. Hérna er okkar útfærsla þar sem Ostakubbur frá Gott í matinn fær að njóta sín í allri sinni dýrð.

Tiktok-pasta

Fyrir fjóra

  • 1 stk. Ostakubbur frá Gott í matinn
  • 500 g kirsuberjatómatar
  • 3 stk. hvítlauksrif
  • 1⁄2 tsk. chiliflögur (magn eftir smekk)
  • 1 tsk. þurrkað óreganó
  • smá sjávarsalt
  • 1⁄2 dl ólífuolía
  • 500 g þurrkað pasta að eigin vali
  • væn handfylli fersk basilíka

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 180 gráður með blæstri.
  2. Setjið ostakubbinn í eldfast mót og hellið heilum kirsuberjatómötum í kringum ostinn.
  3. Sneiðið hvítlauksrifin í þunnar sneiðar og dreifið yfir ásamt chiliflögum, óreganó og smá salti.
  4. Hellið ólífuolíu yfir allt og blandið aðeins saman. Hafið ostinn í miðjunni
  5. Bakið í 25 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og tómatarnir mjúkir.
  6. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka á meðan osturinn og tómatarnir bakast.
  7. Sigtið pastað og hellið því heitu yfir ostinn og tómatana og blandið vel saman.
  8. Toppið með rifinni ferskri basilíku, smakkið til með salti eftir smekk og berið fram.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir

Ljósmynd/Gott í matinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert