Penne alla vodka

Ljúffengur pastaréttur sem kitlar bragðlaukana.
Ljúffengur pastaréttur sem kitlar bragðlaukana. Mbl.is/Snorri Guðmundsson

Ljúffengur pastaréttur sem varð vinsæll á áttunda áratugnum á Ítalíu og í Bandaríkjunum – og þykir enn sá besti. Hér er vodka sett í pastasósuna og soðið þar til áfengið gufar upp, og eftir situr ljúffeng og silkimjúk rjómalöguð tómatsósa – að sögn Snorra Guðmunds hjá Mat og myndum.

Snorri mælir með að toppa með steiktu beikoni eða pancettabitum, saxaðri steinselju og parmesan.

Penne alla vodka (fyrir 2)

  • pennepasta, 250 g / t.d. De Cecco
  • pancetta eða beikon, 100 g
  • vodka, 60 ml
  • san Marzano tómatar, 1 400 g dós / (mega vera venjulegir)
  • tómatpúrra, 3 msk
  • chiliflögur, 1 ml
  • laukur, 1 stk
  • hvítlaukur, 4 rif
  • rjómi, 120 ml
  • smjör, 50 g
  • steinselja, 10 g
  • parmesan, 50 g
  • lítið baguettebrauð, 1 stk

Aðferð:

  1. Setjið vatn í pott ásamt ríflegu magni af salti og náið upp suðu.
  2. Setjið tómata í blandara eða maukið innihald dósarinnar með töfrasprota.
  3. Saxið lauk smátt. Pressið þrjú hvítlauksrif. Skerið pancetta eða beikon í bita.
  4. Steikið pancetta/beikon við miðlungshita þar til kjötið er stökkt og fallegt. Setjið á disk til hliðar og geymið.
  5. Steikið lauk við miðlungshita þar til hann er glær og mjúkur (varist að brúna laukinn). Bætið pressuðum hvítlauk út á pönnuna ásamt chiliflögum og steikið þar til hvítlaukurinn fer að ilma. Bætið tómatpúrru út á pönnuna og steikið í nokkrar mín. þar til tómatpúrran þykknar og dökknar aðeins.
  6. Bætið maukuðum tómötum út á pönnuna ásamt helmingnum af pancetta/beikoni og svolitlu salti og látið malla í 10 mín þar til sósan þykknar aðeins.
  7. Bætið rjóma út á pönnuna, rífið ¾ af parmesanostinum saman við og látið malla í 5 mín.
  8. Bætið penne út í pottinn með sjóðandi vatninu og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Geymið 1 dl af pastavatninu áður en vatnið er sigtað frá pastanu.
  9. Bætið vodka út á pönnuna með sósunni ásamt 25 g af smjöri og látið malla á meðan pasta sýður (a.m.k. 10 mín svo áfengið sjóði úr sósunni).
  10. Bætið pennepasta út í pottinn með sósunni og blandið vel saman. Bætið við pastavatni eftir þörfum og látið malla í smástund þar til sósan hefur náð hæfilegri þykkt. Smakkið til með salti.
  11. Saxið steinselju og hrærið saman við réttinn. Toppið með restinni af pancetta/beikoni og parmesanosti.
  12. Bræðið 25 g smjör og pressið 1 hvítlauksrif saman við. Skerið baguette í tvennt og skerið helmingana svo í tvennt þversum. Smyrjið brauðin rausnarlega með hvítlaukssmjöri og rífið parmesan ost yfir. Bakið í miðjum ofni stilltum á 200C grill í nokkrar mín. þar til osturinn er bráðinn og brauðið búið að taka fallegan lit.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert