Kjúklingarétturinn sem Albert dásamar

Albert Eiríks hefur fullkomnað þá list að láta bjóða sér í mat og deila uppskriftinni með lesendum sínum. Og hafi hann okkar ævarandi þakkir fyrir það því margar snilldar uppskriftir hafa með þeim hætti ratað á síður Matarvefjarins hér á mbl.is.

Nú fór Albert í mat til Lindu Baldvins og fékk hvítlaukskjúkling sem Linda er víðfræg fyrir.

„Hvítlauksilminn lagði út á hlað þegar ég mætti, bragðið var engu líkt og eftirbragðið jafnvel betra  Linda er Seyðfirðingur og starfar sem lífsmarkþjálfi og heldur úti Manngildi.is – ráðgjafafyrirtæki. Margir fylgjast með henni á manngildissíðunni á fasbókinni þar sem hún er öflug, og eins fylgjast margir með pistlunum hennar á Smartlandi mbl.is"

Hvítlaukskjúklingur allra tíma

  • 4 kjúklingabringur
  • 1 poki brauðteningar (um 150 g)
  • 1 parmasean ostur heill
  • Heill stór hvítlaukur
  • 2 b jómfrúar ólífuolía
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Olíu, hvítlauk, salti og pipar blandað saman og kjúklingurinn látinn liggja í olíubaðinu í smá stund.
  2. Brauðteningarnir muldir og parmasean osturinn rifinn smátt og blandað saman við.
  3. Kjúklingnum velt uppúr brauðmylsnunni og settur í lokað eldfast mót eða leirpott og látið krauma í ca 45 mínútur. Lokið tekið af í ca 10 mín eða þar til mylsnan er orðin ljósbrún. Ef þarf má auka olíu magnið (ekki gott að hafa of lítið af henni)
  4. Berið fram með hrísgrjónum, sojasósu og hvítlauksbrauði.
Linda og Albert.
Linda og Albert.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert