Beikonsultan sem þykir sú besta

Beikonsulta hentar með flestöllum mat og er geggjuð ofan á …
Beikonsulta hentar með flestöllum mat og er geggjuð ofan á hamborgara. mbl.is/preservinggoodstock.com

Þessi sulta er svo geggjuð að þú munt enda með að nota hana á allan mat - í brönsinn, á ostaborðið eða með grillmatnum. Eins konar sultu-marmelaði sem allir elska.

Beikonsultan sem allir elska

  • 250 g beikon
  • 2 laukar
  • 2 stór hvítlauksrif
  • 1 rautt chili
  • ½ dl viskí
  • 2 msk. púðursykur
  • 2 msk. franskt eplasider edik
  • ½ dl espresso
  • 1 tsk. salt
  • 3 msk. síróp

Aðferð:

  1. Steikið beikonið í ofni við 200°C þar til stökkt og saxið það svo smátt.
  2. Saxið lauk, chili og hvítlauk og blandið saman við beikon og púðursykur, eplasider edik, espresso, salt, síróp og viskí.
  3. Hellið á pönnu og látið suðuna koma upp.
  4. Lækkið undir hitanum og látið malla við vægan hita í 35-40 mínútur - þar til massinn hefur þykknað, er brúnleitur á yfirborðinu og bragðið ólýsanlegt.
  5. Látið kólna alveg og setjið þá inn í ísskáp.
  6. Berið fram með öllu því sem hugurinn girnist!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert