Heimabakað baguettebrauð með geggjuðu smjöri

Alveg tjúllað gott brauð með kryddsmjöri. Gerist ekki betra í …
Alveg tjúllað gott brauð með kryddsmjöri. Gerist ekki betra í helgarbrönsinn en þetta hér. mbl.is/Tia Borgsmidt

Nýbakað brauð er erfitt að standast, sérstaklega þegar það er borið fram með silkimjúku kryddsmjöri sem bráðnar á brauðinu.

Dásamlega gott brauð með geggjuðu kryddsmjöri

  • 10 g ger
  • 4 dl volgt vatn
  • 2 tsk. salt
  • 120 g heilhveiti eða durum
  • 450 g hveiti, helst tipo 00

Annað:

  • 16 fersk salvíublöð
  • 2-3 msk. ólífuolía

Kryddsmjör:

  • 150 g mjúkt smjör
  • 4 msk. saxaðar kryddjurtir, t.d. steinselju, púrrlauk eða basilikum

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í vatninu og bætið restinni af hráefnunum saman við. Hnoðið vel saman.
  2. Setjið deigið til hliðar og látið hefast í 3 tíma.
  3. Skiptið deiginu í tvennt og mótið í 2 breið baguette. Setjið hreint viskastykki yfir og látið hefast í 20 mínútur.
  4. Skerið rákir í deigið og leggið salvíublöð í rifurnar. Dreypið ólífuolíu yfir.
  5. Bakið við 225°C í 25 mínútur.
  6. Berið fram með kryddsmjöri.

Kryddsmjör:

  1. Hrærið mjúkt smjörið saman við saxaðar kryddjurtirnar.
  2. Berið smjörið fram mjúkt með nýbökuðu brauðinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert