Grillað lamb með gremolata og kartöflusalati sem leynir á sér

Hafliði Halldórsson. Grillmatur. Grillað lamba-innanlæri með grilluðu brokkolí.
Hafliði Halldórsson. Grillmatur. Grillað lamba-innanlæri með grilluðu brokkolí. mbl/Arnþór Birkisson

Lambið er sívinsælt á grillið og skyldi engan undra. Hér gefur að líta grillað lamb með snilldarmeðlæti en það er kartöflusalat sem leynir verulega á sér og gremolata. 

Það er meistari Hafliði Halldórsson sem á heiðurinn að uppskriftinni og eins og við er að búast er þetta algjör negla. 

Grillað lamb með gremolata og kartöflusalati

  • 1 pk. lamba-innra læri u.þ.b. 300 gr.
  • 3 msk. repjuolía
  • ½ brokkoli haus, skorinn gróft

Aðferð:

  1. Brúnið kjötið á heitu grilli í tvær mínútur á hvorri hlið og setjið á efri hillu á grillinu, lækkið í meðalhita og lokið grillinu.
  2. Eldið í u.þ.b. 20 mín. þar til það nær 58 °C í kjarnhita. Mæli með notkun á kjarnhitamæli!
  3. Takið af grillinu og hvílið við stofuhita í 10 mín.
  4. Berið ríflegt magn af gremolata á kjötið áður en það er borið fram.
  5. Grillið brokkoli og berið fram ásamt ferskri tómatasósu.

Kartöflusalat

  • 400 gr. soðið kartöflusmælki
  • 100 gr. grænar ólífur
  • 2 msk. kapers
  • 1 msk. dijon
  • 1 msk. hunang
  • 4 msk. ólífuolía
  • 2 msk. ítölsk steinselja
  • klípa af salti

Gremolata

  • 1 búnt ítölsk steinselja
  • 1 geiri hvítlaukur
  • Sítrónubörkur af 2 sítrónum

Saxið steinseljuna gróft, rífið hvítlauk og sítrónubörk á fínu rifjárni og blandið saman.

Tómatasósa

  • 1 msk. olía
  • ½ laukur skorinn í teninga
  • 1 hvítlauksrif, smátt skorið
  • 2 pakkar ferskir konfekttómatar
  • 1 stk. hunang
  • svartur grófmulinn pipar
  • salt

Svitið lauk og hvítlauk á hægum hita í 2 mín., bætið tómötunum við og látið sjóða í 10 mín., bætið við hunangi og smakkið til með svörtum pipar og salti. Maukið í matvinnsluvél.

Hafliði Halldórsson er afburðagrillari og kann vel á lambið.
Hafliði Halldórsson er afburðagrillari og kann vel á lambið. mbl/Arnþór Birkisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert