Ingibjörg Anna kom, sá og sigraði

Sigurvergari keppninnar.
Sigurvergari keppninnar. mbl.is/AE

Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson voru sérlegir dómarar kvenfélagskvenna í Grundarfirði á dögunum. Af mörgum góðum kökum sem boðið var upp á stóð þessi upp úr að sögn Alberts og bar sigur úr býtum.

Höfundur hennar er Ingibjörg Anna Hinriksdóttir, sem nýgengin er í kvenfélagið Gleym mér ei, og átti heldur betur glæsilega inngöngu.

Jarðarberja- og Baileys-terta

Svampbotn

  • 1 bolli sykur
  • 1 bolli egg
  • ¾ bolli hveiti
  • ¼ bolli kartöflumjöl
  • 1 tsk. lyftiduft

AÐFERÐ:

  1. Stillið ofninn á 160°.
  2. Þeytið egg og sykur saman þannig að þau verði ljós og létt. Bætir síðan þurrefninu í skálina og hrærir varlega saman. Setjið degið í form og inn í ofn í u.þ.b kortér. Kælið svampbotninn.

Marengs

  • 170 gr. sykur
  • 3 eggjahvítur

AÐFERÐ:

  1. Stillið ofninn á 140°.
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar saman við sykurinn. Setjið í formið og inn í ofn í u.þ.b klukkustund. Kælið marengsinn.

Að auki þarf:

Makkarónur
 og eina öskju af jarðarberjum.

AÐFERÐ:

  1. Setjið svampbotn á disk. Raðið makkarónum á botninn og hellið vel af Baileys yfir. Þeytið 500 ml af rjóma. Geymið smá rjóma til hliðar.
  2. Skerið kassa af jarðarberjum niður í litla bita (gott að geyma nokkur ber til skreytinga) og blandið saman við rjómann.
  3. Dreifið rjómanum vel yfir makkarónurnar. Setjið marengsið ofan á rjómann og þrýstið varlega á marengsið svo að hún festist. 
  4. Takið rjómann sem þið lögðuð til hliðar og smyrjið hliðina vel. 


  5. Skreytið með Baileys-súkkulaði og með berjum að eigin vali.

Baileys-súkkulaði

  • 3 msk. Baileys
  • 2 msk. rjómi
  • 75 gr. suðusúkkulaði
Albert Eiríksson, Ingibjörg Anna Hinriksdóttir og Bergþór Pálsson ásamt sigurvegara …
Albert Eiríksson, Ingibjörg Anna Hinriksdóttir og Bergþór Pálsson ásamt sigurvegara keppninnar, jarðarberja- og Baileys-tertunni. mbl.is/AE
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert