Eggin hennar Áslaugar

Eggin hennar Áslaugar voru í meira lagi skemmtileg.
Eggin hennar Áslaugar voru í meira lagi skemmtileg. Eggert Jóhannesson

Það var mikið um dýrðir þegar sýningin Allir fuglar úr eggi skríða var opnuð á föstudaginn. Boðið var upp á ætilegan eggjagjörning í boði Áslaugar Snorradóttur og Matarvefurinn var sérlega spenntur að sjá hvað meistari Áslaug myndi bjóða upp á. Áslaug stóð fyllilega undir væntingum eins og við var að búast og útkoman var í meira lagi skemmtileg.

Omnom kynnti jafnframt sérlöguð súkkulaðiegg, Reykjavík Letterpress verpti eggjum og Birna Geirfinnsdóttir var með innsetningu þar sem hún raðaði saman teikn­ing­um Rán­ar Flygenring og Bene­dikts Grön­dal af fugl­um og eggj­um svo að fátt eitt sé nefnt.

Áslaug Snorradóttir ásamt Bjarna Sig­urðssyni.
Áslaug Snorradóttir ásamt Bjarna Sig­urðssyni. Eggert Jóhannesson
Gröndalshús Fichersundi, hönnunarmars, opnun á sýningunni Allir fuglar úr eggi …
Gröndalshús Fichersundi, hönnunarmars, opnun á sýningunni Allir fuglar úr eggi skríða. Eggert Jóhannesson
Eggjabikararnir góðu.
Eggjabikararnir góðu. Eggert Jóhannesson
Bjarni Sig­urðsson leir­listamaður frum­sýn­ir eggja­bik­ara með aðstoð land­náms­hænu.
Bjarni Sig­urðsson leir­listamaður frum­sýn­ir eggja­bik­ara með aðstoð land­náms­hænu. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert