Ný bónorðsaðferð slær í gegn

Frumleg aðferð.
Frumleg aðferð. mbl.is/Instagram

Fólk er sífellt að leita að frumlegum aðferðum til að biðja síns heittelskaða eða heittelskuðu og fæstar eiga þær erindi inn á matarvefinn. En þessi á það svo sannarlega og hún er að slá í gegn meðal þúsaldarkynslóðarinnar sem elskar fátt heitar en... avókadó.

Matarstílistinn Colleen Dike birti þessa mynd á Instagram á dögunum og átti engan veginn von á þeim viðbrögðum sem hún hefur fengið. Þúsundir „lækuðu“ myndina og nú virðist þetta vera „trenda“ um heim allan.

Hér tók einhver hugmyndina upp á sína arma og greinilegt að sú sem fékk bónorðið var nokkuð ánægð:

 Þessi elska hefði mátt velja öng óþroskaðari ávöxt en það er hugurinn sem gildir:




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert