Jólagjöfin í ár fyrir áhugafólk um víndrykkju í baði

Rómantískt!
Rómantískt! mbl.is/SipCaddy

Finnst þér gott að sötra vín í baði? Finnst þér hápunkturinn á erfiðum degi vera þegar þú kemur þér þægilega fyrir í sjóðheitu vatninu og sötrar kalt hvítt? Þá er þetta augljóslega gjöfin fyrir þig.

Um er að ræða festingar sem virðast sérlega sniðnar fyrir baðkör og mögulega sturtur ef markaðsefni frá framleiðandanum SipCaddy er skoðað. Möguleikarnir virðast óþrjótandi en flestir snúast þeir um áfengisneyslu af einhverju tagi.

Við erum fremur heilluð af þessu og sjáum fyrir okkur að þetta muni vekja talsverða lukku. Við vörum fólk þó við of mikilli áfengisneyslu í baði. Það getur endað illa gott fólk.

Bath wine heaven #bubblebath #bathwine #rosé #sipcaddy

A post shared by SipCaddy (@sipcaddy) on Dec 4, 2016 at 3:36pm PST



Heppilegt að geta geymt glasið á svona góðum stað.
Heppilegt að geta geymt glasið á svona góðum stað. mbl.is/SipCaddy
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert