Rjómalöguð Bessastaðaýsa með osti

Bessastaðar ýsan er rjómalöguð með ostum og sveppum.
Bessastaðar ýsan er rjómalöguð með ostum og sveppum. mbl.is/Ljufmeti.com

Hún elsku Svava okkar Gunnars á ljúfmeti.com deildi þessari uppskrift nýverið en uppskriftina fann hún í bók hjá móður sinni og kolféll fyrir afrakstrinum.

Bessastaðaýsa

  • 200 g hrísgrjón
  • 600 g fiskur (ýsa eða þorskur)
  • 2-3 msk majónes
  • 200 ml rjómi
  • 50-100 g parmesanostur (má sleppa)
  • 1-2 tsk karrý
  • 1 tsk gróft sinnep
  • 1/2 vænn blaðlaukur (skorinn í sneiðar)
  • 1 box sveppir (skornir í sneiðar)
  • 200 g ostur
  • salt og svartur pipar

Sjóðið grjón samvkæmt leiðbeiningum og setjið í eldfast mót þegar þau eru nánast soðin. Skerið fiskinn í bita, saltið og leggið fiskinn ofan á grjónin.

Sósa: Blandið rjóma, majónes, parmesanosti, karrý, sinnepi, svörtum pipar og salti í skál og hrærið vel saman.

Hellið sósunni yfir fiskinn og grjónin. Að lokum, blandið sveppum og blaðlauk saman og leggið yfir fiskinn. Toppið svo með rifnum osti, Þetta er svo bakað við 180° í 30 mínútur.

mbl.is/Ljufmeti.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert