Brugguðu bjór úr 200 kg af bláberjum

Til að fagna komu Ölvisholts X verða bruggararnir sem komu …
Til að fagna komu Ölvisholts X verða bruggararnir sem komu að bjórnum með smakk á Bjórgarðinum, Fosshóteli fimmtudaginn 21. september milli 17 og 19. mbl.is/

Í tilefni þess að tíu ár verða liðin í ár síðan fyrsti bjórinn fór í tankana hjá Ölvisholti hefur brugghúsið framleitt sérstakan afmælisbjór í takmörkuðu magni. Bjórinn er væntanlegur í Vínbúðina nú um helgina en áhugasamir geta þó fengið að smakka á fagurbláum bjórnum í kvöld.

„Við vildum halda upp á afmælið með sérstökum afmælisbjór og völdum októbertímabilið í Vínbúðunum til þess. Til að gera þetta enn skemmtilegra buðum við bruggmeisturum fyrri ára til okkar í afmælisköku og sambrugg en saman brugguðu Valgeir, Árni, Elvar og Ásta þennan bláberja-hveitibjór. Bjórinn er 6,4%, ósíaður, þurrhumlaður og fallega fjólublár. Við notuðum 200 kg af bláberjum sem gefa bjórnum mikið bragð og sterkan lit,“ segir í fréttatilkynningu frá Ölvisholti. 

Nafnið Ölvisholt X er bein vísun í rómverska táknið fyrir 10 en eftir að nafnið var ákveðið hefur komið í ljós að Apple ætlar að gefa út iphone X með haustinu auk þess sem nú er ljóst að alþingiskosningar eru á döfinni nú í október. Ölvisholt X á því vel við sem októberbjór Ölvisholts.

„Í dag framleiðir Ölvisholt sex tegundir sem eru í sölu allt árið en auk þess höfum við framleitt tímabilsbjóra eins og þorrabjór, páskabjór, sumarbjór, októberbjór og jólabjór. Í vetur bætist svo við nýr vetarbjór, Hel sem er dökkur porter bjór,“ segir einnig í tilkynningunni en áhugasamir geta lagt leið sína á Bjórgarðinn í kvöld til að smakka á bjórnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert