Ómótstæðileg kókosbollusæla

Kókosbollubombur eru sívinsælar.
Kókosbollubombur eru sívinsælar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Albert Eiríksson matgæðingur okkar elskar kókosbollur og við elskum Albert. „Þessi kókosbollusæla er mjög mjög góð og eiginlega ekki nokkur leið að hætta – svo er hún bara svo ótrúlega holl (grín).

Það getur verið mikil kúnst að halda boð og láta allt ganga upp, nú er ég ekki að segja að ég sé fullkominn í þessu – langt frá því. Til þess að veislur gangi vel fyrir sig er mikilvægt að undirbúa allt eins vel og hægt er – auðvitað sjáum við ekki allt fyrir, við vitum t.d. ekki hvaða stefnu umræður í boðinu taka.

Hver kannast ekki við að setjast niður „hjá sínu fólki“, þar finnum við öryggi og okkur líður vel. Stundum á það við. Það er líka fínt að blanda eins og hægt er þannig að fólk kynnist. Í dömuboðinu í ár var leikur, ég tók eitt orð úr nýjustu færslunni þeirra á Fasbókinni, skrifaði það á sitt hvorn miðann. Annar miðinn fór við fyrirdiskinn en hinn í skál. Síðan drógu þær miða og fundu miða með sama orði á og settust þar. Aftan á miðanum á borðinu stóð frá hverri orðið var. Síðan fórum við hringinn, hver og ein las sinn miða og sú sem átti orðið og færsluna sagði frá henni. Fínn ísbrjótur og allnokkrar umræður um færslurnar.“

Ómótstæðileg kókosbollusæla

ca. 12-14 makkarónukökur
1 dl sérrý
1/3 tsk. salt
1/4 l rjómi
4 kókosbollur
1/2 marengsbotn, brotinn gróft
1 mangó, skorið í bita
1 pera, skorin í bita
1 msk. sítrónusafi
1 bolli fersk jarðarber
1 bolli vínber
2-3 msk. sítrónusmjör
1/2 bolli Nóa kropp

Brjótið makkarónur í tvennt, raðið í botninn á formi. Hellið sérrýinu yfir og stráið salti þar yfir. Stífþeytið rjómann, bætið saman við kókosbollum, ávöxtum og sítrónusafa. Blandið saman við með sleif. Setjið yfir makkarónukökurnar. Dreifið úr sítrónusmjörinu yfir.

Skreytið með vínberjum og Nóa kroppi. Látið standa í 2-3 klst. áður en hún er borin á borð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert