Selja Yahoo og AOL á fimm milljarða dala

Netfyrirtækin Yahoo og AOL hafa mátt muna sinn fífil fegri.
Netfyrirtækin Yahoo og AOL hafa mátt muna sinn fífil fegri. AFP

Samskiptafyrirtækið Verizon seldi fjölmiðlafyrirtækin Yahoo og AOL í dag. Heildarsöluvirðið, samkvæmt breska ríkisútvarpinu, var fimm milljarðar bandaríkjadala og voru fyrirtækin seld bandarískum fjárfestingasjóði.

Yahoo og AOL voru bæði meðal stærstu fjölmiðlafyrirtækja heims um síðustu aldamót. Voru þau brautryðjendur í því að veita notendum netsins ókeypis aðgang að ýmsum þjónustum eins og tölvupósti og spjallveitum. 

Halla tók undan fæti, meðal annars vegna harðnandi samkeppni við aðra keppinauta á netinu og fjölda misheppnaðra fjárfestinga. Í seinni flokknum má t.d. nefna kaup Yahoo á bloggsíðunni Tumblr og fréttasíðunni Huffington Post sem ekki skiluðu þeim hagnaði sem búist var við.  

Verizon keypti AOL árið 2015 og Yahoo árið 2017 og greiddi samtals 9 milljarða bandaríkjadala fyrir bæði fyrirtækin. Verizon vonaðist til þess að kaupin myndu gera því kleift að keppa við stærstu netfyrirtækin, þar á meðal Google og Facebook. Allt kom fyrir ekki og voru Yahoo og AOL því seld samhliða áformum Verizon um að einbeita sér að fjarskiptasviði þess og stækkun 5G-nets þeirra.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert