Eitt stærsta mót heims haldið í Laugardalshöll

Orðrómur meðal netverja um að mótið yrði haldið í Reykjavík …
Orðrómur meðal netverja um að mótið yrði haldið í Reykjavík fór á flug eftir að þessi mynd fór í dreifingu á samfélagsmiðlum. Ljósmynd/Riot Games

Eitt stærsta rafíþróttamót heims, League of Legends Mid-Season Invitational, verður haldið í Laugardalshöll í maí. Í framhaldi af því verður í fyrsta skipti haldið alþjóðlegt mót í tölvuleiknum Valorant á sama stað. Um fjögur hundruð manns munu koma til landsins í tengslum við mótin en þau muna standa yfir í um fjórar vikur.

Framleiðandi leikjanna, fyrirtækið Riot Games, staðfesti í dag að mótin yrðu haldin hér á landi. Orðrómur um staðsetninguna hafði verið á kreiki meðal netverja eftir að mynd, sem virðist vera úr kynningarefni fyrir mótið, var deilt á vefsvæði Reddit.

„Við erum spennt fyrir að halda mót í jafn fallegu og einstöku landi og Ísland er. Það sýnir ástríðuna fyrir rafíþróttum Riot Games að þær eru spilaðar um allan heim,“ er haft eftir John Needham, yfirmanni rafíþróttadeildar Riot Games, í tilkynningu.

Kaupa um átta þúsund gistinætur á íslenskum hótelum

Íslandsstofa aðstoðaði Riot Games við að komast í samband við Reykjavíkurborg og aðra þjónustuaðila hérlendis sem taka þátt í undirbúningi mótsins. Í tilkynningu frá Íslandsstofu segir að hópurinn muni kaupa um 8.000 gistinætur á íslenskum hótelum auk þess sem íslenskir þjónustuaðilar muni koma að framkvæmd mótanna. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir þetta fyrstu góðu fréttirnar sem íslensk ferðaþjónusta hefur fengið í langan tíma.

„Keppendur og starfsfólk munu í öllu fylgja gildandi sóttvarnarreglum og fara í sóttkví áður en mótið hefst. Einnig verða sýni tekin reglulega úr gestum til að fyrirbyggja að smit komi upp í hópnum. Riot Games hefur verið í beinu samráði við embætti landlæknis til þess að tryggja að smitvarnir verði með sem bestu móti,“ segir í tilkynningunni.

Tugir milljóna horfa á beina útsendingu

League of Legends, eða LOL eins og hann er kallaður, er einn vinsælasti tölvuleikur heims og áhorf á beinar útsendingar frá keppnum atvinnumanna í tölvuleiknum njóta gríðarlegra vinsælda. Alls horfðu 23 milljónir manna á beina útsendingu frá úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu sem fór fram í Shanghai í desember síðastliðnum. Þá fylgdust um hundrað milljónir einstakra áhorfenda með útsendingum frá heimsmeistaramótinu 2019.

„Reykjavík var í hópi 15 borga sem sóttust eftir því að halda þetta mót. Áhugi Riot Games á því að halda mótið hér á Íslandi var ljós frá okkar fyrsta fundi með þeim. Það er góður vitnisburður um það hve mikils trausts íslenskt samfélag nýtur að Ísland varð fyrir valinu,“ segir Karl Guðmundsson, forstöðumaður útflutnings- og fjárfestingasviðs Íslandsstofu.

Kemur Íslandi á kortið

Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands, segir þetta einstakt tækifæri fyrir Ísland til að mynda mikilvæg og sterk tengsl við einstaklinga sem leiða þróun atvinnurafíþrótta á heimsvísu.

Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands.
Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður Rafíþróttasamtaka Íslands. mbl.is/​Hari

„Rafíþróttir á Íslandi hafa vaxið hratt á undanförnum árum og hefur hluti af verkefnum RÍSÍ verið að koma Íslandi inn á rafíþróttakortið sem spennandi vettvang fyrir framtíðarhæfileika í rafíþróttum og einstakri staðsetningu fyrir alþjóðlega rafíþróttaviðburði.

Það að fá Riot Games til Íslands með tvo af stærstu rafíþróttaviðburðum heims er gífurleg viðurkenning á þessu starfi og leggur grunninn að því að laða til landsins fleiri stóra rafíþróttaviðburði í framtíðinni. Þá er þetta einstakt tækifæri fyrir Ísland að mynda mikilvæg og sterk tengsl við einstaklinga sem leiða þróun atvinnurafíþrótta á heimsvísu. Ég tel að þegar litið verður til baka yfir sögu Íslands mun koma þessara viðburða til landsins standa upp úr sem stórt skref fyrir Ísland inn í stafrænan heim framtíðarinnar,“ segir Ólafur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert