Tölvuárásir í yfir 70 löndum

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, sagði tölvuárásinar beinast gegn alþjóðasamfélaginu.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, sagði tölvuárásinar beinast gegn alþjóðasamfélaginu. AFP

Tölvuárásirnar sem voru gerðar á fjölda breskra sjúkrahúsa í dag beinast ekki eingöngu gegn þeim heldur alþjóðasamfélaginu öllu. Þetta sagði Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. Tölvuárásir voru gerðar í að minnsta kosti 70 löndum víðs vegar um heiminn.

Auk Bretlands urðu Spánn, Rússland, Kína, Bandaríkin, Ítalía og Tævan fyrir barðinu á tölvuþrjótunum. Talið er að fleiri lönd eigi eftir að bætast í hópinn, að því er BBC greinir frá.  

Árásin lýsti sér með þeim hætti að skyndilega fraus tölvukerfið og gögn í tölvunum urðu dulkóðuð. Til að aflétta dulkóðuninni er krafist lausnargjalds í gjaldmiðlinum bitcoin sem nemur um 300 dollurum.

Fyrr í dag neyddust nokkur bresk sjúkrahús að vísa sjúkra­bif­reiðum á aðrar heil­brigðis­stofn­an­ir og jafnframt var al­menn­ingur hvattur til að hafa ekki sam­band við lækna sína. 

„Tölvuöryggismiðstöðin vinnur náið með sjúkrahúsinu í að tryggja öryggi sjúklinganna,“ sagði May jafnframt og tók fram að stjórnvöld hefðu ekki vitneskju um að tölvuþrjótar hefðu komist yfir viðkvæm gögn um sjúklinga.  

Á Spáni var gerð tölvuárás á fjarskiptafyrirtæki. Fengu starfsmenn tilkynningu um að slökkva á öllum tölvum.   



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert