Yfir 130 farþegar fengu að njóta einstaks augnabliks er flugvél sem þeir voru um borð í flaug í gegnum suðurljósin. Flugið var sérstaklega farið í þeim tilgangi að sjá þessi mögnuðu ljós. Flugferðin tók átta klukkustundir og var farin þann 23. mars.
Í frétt Live Science segir að um sé að ræða fyrsta flug þessar tegundar á suðurhveli jarðar. Norðurljósaferðir hafa nokkrar verið farnar.
Flugferðin hófst á Nýja-Sjálandi og lauk þar einnig, tæpum átta tímum síðar. Geimfarinn Ian Griffin skipulagði ferðina og var hún auglýst í október á síðasta ári. Aðeins voru seld gluggasæti í vélinni, svo allir hefðu sem best útsýni. Tveir og tveir miðar voru seldir saman og kostaði miðaparið 2.776 dollara eða um 306 þúsund krónur. Miðarnir seldust upp á fimm dögum.
En hvað eru suðurljós?
Þau eru sambærileg norðurljósunum sem við hér á Íslandi þekkjum svo vel.
Þau myndast við svona aðstæður: Sólvindur streymir úr svonefndri kórónugeil á sólinni. Kórónugeilar eru nokkurs konar göt í kórónu sólarinnar, hjúpi um milljón gráðu heits rafgass sem umlykur sólina, sem hlaðnar agnir geta streymt í gegnum út í geiminn. Það eru þessar agnir sem mynda sólvindinn sem veldur norður- og suðurljósum, svonefndum segulljósum, þegar þær rekast á lofthjúp jarðar.
Hér að neðan er stutt myndskeið af því sem fyrir augu bar í háloftunum: