Víðir Sigrúnarson, yfirlæknir á Vogi, segir bataferli einstaklinga með fíknisjúkdóma ekki hefjast fyrir alvöru fyrr en að fíknimeðferð lokinni. Víðir er gestur Berglindar Guðmundsdóttur í Dagmálum þar sem hann ræðir áfengis- og vímuefnaneyslu Íslendinga nú á dögum og hversu miklum breytingum neyslumynstrið hefur tekið síðustu ár.