Mjaldrarnir Litla-Grá og Litla-Hvít eru loks komnar í Klettsvík við Vestmannaeyjar. Þangað voru þær fluttar í dag og gekk flutningurinn afar vel, að sögn Audrey Padgett, framkvæmdastjóra Sea Life Trust í Vestmannaeyjum. Pláss er fyrir átta mjaldra í viðbót á griðarsvæði Litlu-Gráar og Litlu-Hvítar.