Dynjandi er án vafa eitt tilkomumesta vatnsfall landsins en hann er um 100 metra hár og stendur við Arnarfjörð á Vestfjörðum. Efst er hann um 30 metra breiður en 60 metrar neðst. Flestir sem heimsækja Vestfirði kíkja á Dynjanda en í meðfylgjandi myndskeiði má sjá fossinn frá ýmsum sjónarhornum.