Þrastarunginn Pípí vakti athygli í síðustu viku þar sem hann fékk skjól í unglingaherbergi í Kópavogi eftir að hafa lent í gini kattar. Eftir að hafa fengið næringu frá móður sinni á svölum heimilisins braggaðist hann og byrjaði að æfa flugtökin. Fyrir helgi tók hann svo flugið á vit ævintýranna.