Páskaverslun var nokkuð góð hjá Hagkaupum að sögn framkvæmdastjóra búðanna. Ýmislegt var þó ólíkt því sem gerist í venjulegu árferði. Meira seldist af matvöru sem má rekja til þess að færri voru erlendis yfir hátíðarnar en einnig að minna var um veisluhöld. Þá seldust heitir pottar upp í verslunum.