Birgir Hrafn Sigurðsson hafði lengi haft áhuga á að eignast þjóðbúning en það er auðveldara um að tala en í að komast. Það eina í stöðunni var því að fara á námskeið hjá Heimilisiðnaðarfélaginu og sauma búning en það hafði karlmaður ekki gert um árabil. Rétt náðist að klára búninginn fyrir jólin.