Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Keflvíkinga var súr í bragði þegar fréttaritari hafði orð af honum eftir tap Keflavíkur og Þórsara í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld. Keflvíkingar voru ansi daprir í sínum leik og viðurkenndi Friðrik að þessi leikur hafi verið hans mönnum til skammar.