„Ég geri þetta allt í höndunum. Þetta er ekki neitt verksmiðjuferli,“ segir gítarsmiðurinn Gunnar Örn Sigurðsson sem hefur vakið athygli fyrir handverk sitt, sérsmíðaða gítara sem hann selur hér heima og erlendis. mbl.is kíkti á Gunnar Örn sem hefur smíðað gítara fyrir marga þekkta gítarleikara.