Ana Stanicevic fékk áhuga á íslensku og norrænum tungumálum sem ung stúlka í Serbíu. Hún hefur nú búið hér á landi í sex ár og kennir íslensku í Hí sem stundakennari. Hún segir margt vera heillandi og sérstakt við íslenskuna t.a.m. aðblásturinn þegar borinn er fram sérhljóði á undan samhljóðaklasa.