Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út víða í Ástralíu í dag þegar tilkynnt var að hjónabönd samkynhneigðra hafi verið samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Já fyrir ástina, segir forsætisráðherra landsins, Malcolm Turnbull, sem er einn þeirra sem styður fyrirhugaða lagabreytingu.