Útlit er fyrir að fellibylurinn María hafi lagt eyjuna Púertó Ríkó í rúst. Greint var frá því fyrr í kvöld að eyjan sé með öllu rafmagnslaus. „Þegar við getum loks farið út aftur munum við sjá að eyjan okkar hefur verið lögð í rúst,“ sagði Abner Gómez Cortés, yfirmaður almannavarna.